Félagið
Forsíða
Fréttir
Stundaskrá
Gjaldskrá
Greinar og viðtöl
Dagskrá
Stjórn
Þjálfarar
Aðstaðan
Svartbeltingar
Myndir
kdh.is sem upphafssíða
Um deildina
Haukar.is
Karate
Algengar spurningar
Reglur
Dojo Kun
Kihon
Kata
Kumite
Gráðunarkröfur
Orðalisti
Bækur
Póstlisti
Póstlistinn er í samstarfi við coollist.com
Sláðu inn netfang þitt:

 
 

31. ágúst 2010 | G.S
Karate 101
Haustnámskeiðin eru að hefjast aftur eftir sumarið.

* Karateskólinn hefst sunnudaginn 5september nk.
* Byrjenda og framhaldsnámskeiðin hefjast svo mánudaginn 6. september samkvæmt stundaskrá.

Við viljum hvetja iðkendur/forráðamenn og þá sér í lagi nýja til að kynna sér vel efnið undir tenglunum reglur, algengar spurningar, kihon, kata og kumite ofl.

Hlökkum við til að sjá alla gömlu félagana aftur eftir sumarfrí, og að sjálfsögðu tökum við vel á móti nýjum iðkendum. Að auki langar okkur til að bjóða alla eldri félaga sem hafa tekið sér frí frá æfingum, hvort sem um lengri eða skemmri tíma er að ræða innilega velkomna aftur.

Sjáumst!

Stjórnin.

>> meira

31. maí 2010 | K.Ó
Sumaræfingar 2010
Sumaræfingar karatedeildar verða sem hér segir.

Mánudagar
19:15-20:30

Miðvikudagar
19:15-20:30

Fimmtudagar
19:15-20:30

Sumaræfingar eru fyrir 12 ára og eldri.

Æfingar hefjast samkvæmt þessari töflu þriðjudaginn 1júní.

Verð 8.500 kr. fyrir sumarið eða 3.500 kr. fyrir mánuð í senn.

Stjórnin..

>> meira

26. maí 2010 | G.I
Gráðun hjá FB1
Gráðunun verður mánudaginn 31maí nk. kl 19:00 hjá FB1 og stendur í um klukkustund.

Ég vil minna alla á að taka með sér 1.000 kr. fyrir gráðuninni, gráðunarbókina og góða skapið.

Kveðja,
Guðmundur Ingi
Þjálfari.

>> meira

18. maí 2010 | G.S
Æfingabúðir með Sensei Jan Spatzek 7. Dan
Dangana 28-30maí nk. mun sensei Jan Spatzek 7. dan kenna á æfingabúðum hjá okkur.
>> meira

17. maí 2010 | S.H
Gráðun hjá FB2
Gráðun hjá FB2 verður þriðjudaginn 18 maí klukkan 18 Gráðunin kostar 1000,- kr. Í gráðunina þurfa þeir sem eiga ferilbók að koma með hana með sér. Önninni lýkur þriðjudaginn 18.
>> meira

10. apríl 2010 | G.I
Æfing hjá FB1 fellur niður á morgun!
Af óviðráðanlegum aðstæðum þá fellur tíminn hjá FB1 niður á morgun kl11-12.
Guðmundur Ingi þjálfari.. . .

>> meira

10. febrúar 2010 | K.Ó
Kumite-æfingar
Kumiteæfingarnar á mánudögum hafa ekki verið mjög vel sóttar undanfarið og fjöldi keppenda á mótum er ekki mikill.

Þessu viljum við breyta.

Á mánudögum frá 19:15 til 20:45 eru Kumiteæfingar eins og segir á stundatöflunni, en þessar æfingar hafa verið fyrir 14 ára og eldri hingað tilNúna viljum við bjóða alla þá sem náð hafa 10 ára aldri velkomna á Kumiteæfingar.

Ekki er nauðsynlegt að mæta með hlífar fyrst, en við mælum með því að iðkendur fái sér fljótlega handahlífar og einnig tannhlíf.

Vonumst við til að þetta komi til með að auka áhuga iðkenda á keppni sem og íþróttinni í heild sinni.


Kveðja,
Kristján og Ísak þjálfarar
. . .

>> meira

1. febrúar 2010 | G.S
Breyttir æfingatímar
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna hefur þurft að gera eftirfarandi breytingar á stundaskrá.

FB2 og B2/B3 sem hafa æft á fimmtudögum hafa verið færðir yfir á þriðjudaga á sömu tímum og áður.
Á móti hafa tímar FU2, M1 og KA verið færðir yfir á fimmtudaga á sömu tímum og áður.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kanna að valda.

Við biðjum iðkendur og forráðamenn að kynna sér breytingarnar hér til hægri undir tenglinum "Stundaskrá".

Stjórnin.. . .

>> meira

25. janúar 2010 | G.S
Frístundabíll
Tilraunaverkefni um aukin lífsgæði í Hafnarfirði Nú er að hefjast metnaðarfullt samfélagsverkefni í Hafnarfirði sem ber vinnuheitið FRÍSTUNDABÍLLINNUm er að ræða tilraunaverkefni sem lýkur 31. maí 2010 og verður þá tekin ákvörðun um framhaldið sem ráðast mun einkum af þeim móttökum sem Frístundabíllinn hefur fengið.

Allar nánari upplýsingar um verkefnið er að finna hér http://www.fristundabillinn.is

Stjórnin.. .

>> meira

21. janúar 2010 | G.S
Hátíð Japans, 23. janúar, 2010 í Háskóla Íslands
Hátíð Japans verður haldin 23janúar frá 13:00 til 18:00 í Háskólatorgi, Háskóla Íslands. Hátíðin er skipulögð af japönskudeild hugvísindasviðs Háskóla Íslands í beinu samráði við japanska sendiráðið á Íslandi.
Hátíðin hefur verið haldin árlega síðan 2005 og verður nú haldin í sjötta sinn. Hafa hátíðarhöldin að þessu sinni verið flutt úr Aðalbyggingunni yfir í Háskólatorg sem er töluvert stærra rými(alls þrjár hæðir).

Þeir 40 áhugasömu nemendur sem tilheyra japönskudeildinni hafa nýtt hæfileika sína og sköpunargáfu, í samvinnu við sendiráðið og samfélag Japana á Íslandi til þess að gera hátíðarhöldin skemmtileg, vel heppnuð og sem eftirminnilegust.

>> meira

12. janúar 2010 | G.S
Breyttir æfingatímar FB1 og FB2
Breytingar hafa verið gerðar á æfingatímum FB1 og FB2 frá því sem var fyrir áramótinÞví viljum við biðja iðkendur og forráðamenn að kynna sér stundaskrána sem er undir tengli til vinstir á síðunni.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta olli í gær.

Stjórnin.. . .

>> meira

9. janúar 2010 | G.S
Arnór Ingi karatemaður ársins 2009
Karatesamband Íslands hefur valið Arnór Inga Sigurðsson karatemann ársins 2009.

Þetta er fyrsta árið sem Arnór Ingi keppir á fullorðinsmótum og hefur hann staðið sig vel bæði innanlands og utanHann hefur lagt sig allan fram í landsliðinu og er verðugur fulltrúi karla í karateíþróttarinnar.

Stockholm Open 1. sæti kumite -75 kg flokkur
Íslandsmeistaramót fullorðina kumite Karlar 1. sæti -84 kg flokkur
GrandPrix Kumite 1.

>> meira

4. janúar 2010 | S.B
Ný námskeið eru að hefjast í Karate!
Ný námskeið eru að hefjast í Karate!

Viltu auka þrek og þol og bæta einbeitinguna.

Námskeiðin hefjast samkvæmt stundaskrá 11janúar og hlökkum við til að sjá alla gömlu félagana aftur eftir jólafrí, og að sjálfsögðu tökum við vel á móti nýjum iðkendum. Að auki langar okkur til að bjóða alla eldri félaga sem hafa tekið sér frí frá æfingum, hvort sem um lengri eða skemmri tíma er að ræða innilega velkomna aftur.

Við viljum sérstaklega hvetja nýja iðkendur/forráðamenn til að kynna sér vel efnið undir tenglunum reglur, algengar spurningar, kihon, kata og kumite ofl.

Sjáumst!

Stjórnin.. .

>> meira

31. desember 2009 | G.S
Karatemaður Hauka 2009
Útnefning Íþróttamanns og konu Hauka fór fram í hádeginu á gamlársdagKaratedeild Hauka tilnefndi Arnór Inga Sigurðsson til Íþróttamanns Hauka fyrir árið 2009. Hann var auk þess valinn karatemaður ársins 2009 hjá Karatesambandi Íslands.

Árangur hans á árinu sem er að líða er eftirfarandi,
1. sæti Íslandsmeistaramóti í kumite Karla -84 kg.

>> meira

11. nóvember 2009 | G.S
Grand Prix og Bikarmót KAI
Sunnudaginn 15nóvember nk. kl. 10.00 fer fram fyrsta Grand Prix og Bikarmót í mótaröðinn 2009-2010 í íþróttahúsinu Varmá Mosfellsbæ.

Byrjað verður á Bikarmótinu þar sem keppt er í
* Kata karla
* Kata kvenna
* Kumite karla
* Kumite kvenna

Strax að því loknu hefst svo Grand Prix þar sem keppt verður í
* Kata 12.

>> meira

8. nóvember 2009 | G.S
Arnór og Kristján Íslandsmeistarar
Í gær fór fram Íslandsmeistaramótið í Kumite og unnu Haukamenn þar til tvennra gullverðlauna, tvennra silfurverðlauna og einna bronsverðlauna

Arnór Ingi Sigurðsson vann gullverðlaun í -75. kg flokki og silfurverðlaun í opnum flokki.
Kristján Ó.

>> meira

8. nóvember 2009 | G.S
Stockholm Open
Í byrjun nóvember tóku nokkrir keppendur frá Haukum ásamt keppendum frá öðrum félögum þátt í opna Stokkhólmsmótinu í karate Mótið var fjölmennt, en um 600 keppendur frá 9 þjóðlöndum tóku þátt. Er skemmst frá því að segja að Arnór Ingi Sigurðsson vann gullverðlaun í -75 kg. flokki fullorðinna í Kumite (bardaga) og keppnislið Hauka vann til bronsverðlauna í liðakeppni karla í Kumite, en Guðbjartur Ísak Ásgeirsson þurfti að draga sig úr keppni vegna meiðsla sem hann hlaut fyrr um daginn.
>> meira

29. október 2009 | K.Ó
Utanyfirgallarnir
Sæl öll

Í næstu viku eiga gallarnir okkar að vera tilbúnir og því er mikilvægt að allir fari að borga sem fyrst.

Verðið er sem fyrr segir 8.000 krónur og leggist inn á reikning deildarinnar
nr: 1101-26-8604
Kt550293-2429

Í skýringu á greiðslunni skuluð þið setja nafn þess sem gallinn er merktur.

Gallarnir verða tilbúnir til afhendingar á miðvikudag eða fimmtudag ef það sem Henson segir stenst.


Kær kveðja,
Karatedeild Hauka. . .

>> meira

9. október 2009 | H.Á
Handleggja hópefli Hauka
Kæru félagar

Með lækkandi sól stefnum við á stækkandi upphandleggsvöðva
Í gang er farinn áskorum sem kennd er við armbeygjur. Í síðasta miðvikudagstíma (7.okt.) byrjuðum við
á prógrammi sem heitir eitthundraðarmbeygjur. Þetta er sex vikna prógramm sem gengur út á það að við
byrjum allar karateæfingar á því að gera armabeygjur og eftir sex vikur getum við gert eitthundrað armbeygjur
án þess að stoppa.

>> meira

5. október 2009 | K.Ó
Dómaranámskeið í Kumite
KAI stendur fyrir dómaranámskeið í kumite laugardaginn 10október kl. 12.00 - 15.30 í fundarsal C, 3ju hæð í Íþróttamiðstöðinni Laugardal.

Þar verður farið ítarlega yfir þær breytingar sem orðið hafa á keppnisreglum WKF í kumite. Helgi Jóhannesson, EKF Referee í kumite heldur kynningu á nýju reglunum.

>> meira

18. september 2009 | G.S
Stundaskrá - Breytingar
Vegna óviðráðanlegra orsaka hefur þurft að gera breytingar á stundatöflu.
Eftirfarandi breytingar taka gildi 21september

· Hópar FB2 og FB3 hafa verið sameinaðir. Æfingatímar verða

Mánudögum kl. 18:00 – 19:00
Fimmtudögum kl.

>> meira

27. ágúst 2009 | G.S
Velkomin í Karate
Ný stundaskrá fyrir haustið er komin á netiðÞú getur fundið hana hér til vinstri undir tenglinum Stundaskrá.

Við viljum sérstaklega hvetja nýja iðkendur/forráðamenn til að kynna sér vel efnið undir tenglunum reglur, algengar spurningar, kihon, kata og kumite ofl.

Framhaldsnámskeiðin hefjast svo samkvæmt stundaskrá 1. september, byrjendanámskeiðin hefjast samkvæmt stundaskrá 7. september og hlökkum við til að sjá alla gömlu félagana aftur eftir sumarfrí, og að sjálfsögðu tökum við vel á móti nýjum iðkendum.

>> meira

28. júní 2009 | K.Ó
Miðvikudagar í sumar
Miðvikudagsæfingarnar í sumar verða með öðru sniði en við eigum að venjastÞær verða í umsjón Kristjáns og verður hefðbundin Karateæfing annan hvern miðvikudag, en hina miðvikudagana verður þrekæfing og er því nauðsynlegt að fólk hafi íþróttaföt meðferðis, skó og þess háttar, því við eigum eflaust eftir að fara eitthvað út að hlaupa.

Miðvikudaginn 1. júlí verður þrekæfing
Miðvikudaginn 8. júlí verður Karateæfing
Miðvikudaginn 15.

>> meira

1. júní 2009 | G.S
Sumaræfingar 2009
Sumaræfingar karatedeildar verða sem hér segir.

Mánudagar
19:00-20:15

Miðvikudagar
19:00-20:15

Fimmtudagar
19:00-20:15

Sumaræfingar eru fyrir 14 ára og eldri.

Verð 8.500 krfyrir sumarið eða 3.500 kr. fyrir mánuð í senn.

Stjórnin.. .

>> meira

3. apríl 2009 | K.Ó
Karate um páskana
Þó frí sé í skólum er engin ástæða til að slá slöku við í Karate og verður því ekki mikið um páskafrí hjá okkur í deildinniEn þó verður ekki kennt þá daga sem húsið er lokað en það eru skírdagur 9. apríl (fimmtudagur), páskadagur 12. apríl (sunnudagur) og annar í páskum 13.
>> meira

16. mars 2009 | K.Ó
Árshátíð Karatefélaganna
Árshátíð Karatefélaganna verður haldin að kvöldi 28mars n.k. í veislusal Breiðabliks í Smáranum. Um er að ræða skemmtun fyrir 18 ára og eldri.

Nánari upplýsingar um verð og hvaða guðaveigar verða á boðstólnum koma seinna, en það er um að gera að taka daginn frá og sýna hinum Karatefélögum landsins hvernig á að skemmta sér!

.

>> meira

8. mars 2009 | K.Ó
Norðurlandamótið í Karate
Norðurlandamótið í Karate verður haldið 18apríl í Kaupmannahöfn að þessu sinni. Haukarnir eiga sína fulltrúa í landsliði Íslands og keppa þeir Arnór Ingi Sigurðsson, Kristján Ó. Davíðsson og útrásarvíkingur deildarinnar Ari Sverrisson í Kumite á mótinu ásamt útrásarvíkingi Fylkis Andra Sveinssyni.

Einnig keppa Aðalheiður Rósa Harðardóttir, KAK, Hekla Helgadóttir, Þórshamri, Tómas Lee Róbertsson, Þórshamri og Kristján Helgi Carrasco, Aftureldingu í Kata á mótinu.

Deildin sendir þeim öllum baráttukveðjur!.

>> meira

10. janúar 2009 | G.S
Velkomin í Karate
Ný stundaskrá fyrir vorið er komin á netiðÞú getur fundið hana hér til vinstri undir tenglinum Stundaskrá.

Við viljum sérstaklega hvetja nýja iðkendur/forráðamenn til að kynna sér vel efnið undir tenglunum reglur, algengar spurningar, kihon, kata og kumite ofl.

Námskeiðin hefjast svo samkvæmt stundaskrá 12. janúar og hlökkum við til að sjá alla gömlu félagana aftur eftir jólafrí, og að sjálfsögðu tökum við vel á móti nýjum iðkendum. Að auki langar okkur til að bjóða alla eldri félaga sem hafa tekið sér frí frá æfingum, hvort sem um lengri eða skemmri tíma er að ræða innilega velkomna aftur.

Sjáumst!

Stjórnin..

>> meira

4. janúar 2009 | G.S
Æfingar að hefjast
Æfingar M1 og FU1 hefjast í þessari viku á sömu tímum og á haustönn.

Aðrir hópar, þ.m.tbyrjendur, kumite og kata byrja í vikunni þar á eftir eða 12. janúar nk.

Einhverjar breytingar verða á barnahópunum, en þær breytingar verða tilkynntar þegar líður á vikuna.

Stjórnin.. .

>> meira

2. janúar 2009 | G.S
Karatefólk Hauka 2008
Á hverju ári útnefnir Karatedeild Hauka íþróttafólk sittAð þessu sinni eru það Guðbjartur Ísak Ásgeirsson og María Björg Magnúsdóttir. Þau eru bæði mjög vel að tilnefningunum komin.

Guðbjartur hefur um þó nokkurt skeið verið einn fremsti karatemaður deildarinnar.
Hann hefur verið í landsliði Íslands í á þriðja ár.
Árangur hans á árinu 2008 er eftirfarandi,

Íslandsmeistaramót í kumite (bardagi)
1. sæti kumite karla -75
1.

>> meira

29. desember 2008 | G.S
Áramótaæfing
Árleg sósu- og rjómaæfing karatedeildarinnar verður haldin á morgun þriðjudaginn 30des. kl. 19-20.
Þá mæta allir iðkendur úr M1 og FU1 og hrista saman af sér jólasteikina, konfektið og allt annað gotterí sem þeir hafa í sig látið.

Kveðja
Gunni
Þjálfari.

>> meira

23. desember 2008 | G.S
Gleðileg jól
Við óskum iðkendum, foreldrum, forráðamönnum og öðrum velunnurum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Þökkum fyrir frábært karateár sem senn er að líða.
Sjáumst svo hress og kát á nýju ári.

Stjórn og þjálfarar
Karatedeildar Hauka. . .

>> meira

17. desember 2008 | K.Ó
Karatepakkar um jólin
Sæl,
Nú styttist í jólin og þar sem karateköppum langar alltaf mest í eitthvað karatedót langar okkur að benda á að það fæst óvíða meira af því en í KaratebúðinniKaratebúðin er rekin af Karatedeild Breiðabliks og er til húsa í Smáranum. Opnun fram til jóla er aðeins á fimmtud. 18.

>> meira

21. nóvember 2008 | G.S
Æfingabúðir með Sveinung Byberg um helgina
Við minnum á æfingabúðirnar með Sveinung Byberg um helgina Dagskrána má finna á vef KAI, www.kai.is.
Ath. að æfingarnar á föstudag og laugardag eru í KFR, Laugardal, en sunnudagsæfingin verður í Þórshamri.
Og við minnum enn og aftur á að góð mæting á þessar æfingar og vikulegar samæfingar verður lykilatriði í úthlutun styrkja frá KAI til keppnisferða á næstu misserum, látið æfingarnar því ekki fram hjá ykkur fara.

Á laugardeginum verður farið í Bláa Lónið og hvetjum við sem flesta að slást með í för.
Seinni æfingunni á laugardag lýkur ca. kl.

>> meira

12. nóvember 2008 | K.Ó
Góður árangur á ÍM í Kumite
1nóvember síðastliðinn fór fram Íslandsmeistaramót í Kumite og gerðu Haukarnir sér góða ferð í Smárann.

Komu við Haukamenn fjórum Íslandsmeistaratitlum ríkari af mótinu og verður það að teljast mjög góður árangur.
Arnór gerði sér lítið fyrir og vann -67kg flokkinn
Ísak vann -75kg flokkinn nokkuð sannfærandi og má geta þess að Kristján Ó. endaði þar í 3. sæti.

>> meira

20. október 2008 | G.S
Íslandsmótið í Kumite
Íslandsmeistaramót í kumite verður haldið 1nóvember nk. Að þessu sinni fer mótið fram í Smáranum Kópavogi og er áætlað að mótið hefjist kl. 13 og ljúki kl.
>> meira

15. október 2008 | K.Ó
Úrslit Lasertagmóts KDH
Nú eru úrslit komin í hús í æsispennandi Lasertagkeppni Karatedeildar Hauka og var það Bláa Liðið sem stóð uppi sem sigurvegari þegar heildarstig eru talinMunurinn var 117 stig og var bláa liðið með 7163 stig en rauða liðið ekki nema 7046.

Stigahæstu einstaklingarnir voru:
1. Pálmar Dan með 1577 stig
2. Guðbjartur Ísak með 1462 stig
3.

>> meira

15. október 2008 | K.Ó
Íslandsmeistaramót KDH í Lasertag!
Lasertag fyrir B2, FU1 og M1

Miðvikudaginn 15október ætlum við að skella okkur í Lasertag að Salavegi 2, Kópavogi klukkan 20:00.
Spilaðir verða tveir leikir og kostar það 1400 krónur á mann. Æskilegt er að vera mættur tímanlega.

Svo nú er um að gera að draga fram Rambómálnignuna og horfa á Die Hard safnið eins og það leggur sig og mæta svo í góðum gír í Lasertag.

Nánari upplysingar veita þjálfarar.. .

>> meira

9. október 2008 | G.S
Íslandsmeistaramót unglinga í kumite 2008
Íslandsmeistaramót unglinga í kumite

Íþróttahúsi Fylkis
sunnudaginn 19október kl. 10:00

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

* Kumite drengja 12 ára
* Kumite drengja 13 ára
* Kumite pilta 14 ára
* Kumite pilta 15 ára
* Kumite pilta (kadett) 16 og 17 ára
* Kumite telpna 12 og 13 ára
* Kumite stúlkna 14 og 15 ára
* Kumite stúlkna (kadett) 16 og 17 ára

Á Íslandsmeistaramótum barna og unglinga er miðað við fæðingarár. Skulu keppendur hafa æft karate í 1 ár hið minnsta.

Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka eða skipta þeim upp eftir þátttöku.

Keppnisreglur WKF eru á heimasíðu KAÍ, www.kai.is - keppendur skulu kynna sér þær fyrir mót!

Mætum öll og fylgjumst með efnilegustu karatemönnum landsins.

Aðgangur ókeypis!

Tilkynning frá Karatesambandi Íslands
www.kai.is.

>> meira

19. september 2008 | G.S
Æfingabúðir með Koike sensei
Æfingabúðir verða haldnar dagana 26.-28september nk. En þá mun Sensei Yutaka Koike 5. Dan JKS heimsækja okkur á Ásvelli.
>> meira

4. september 2008 | G.S
Velkomin í Karate
Ný stundaskrá fyrir veturinn er komin á netiðÞú getur fundið hana hér til vinstri undir tenglinum Stundaskrá.

Við viljum sérstaklega hvetja nýja iðkendur/forráðamenn til að kynna sér vel efnið undir tenglunum reglur, algengar spurningar, kihon, kata og kumite ofl.

Námskeiðin hefjast svo samkvæmt stundaskrá 8. september og hlökkum við til að sjá alla gömlu félagana aftur eftir sumarfrí, og að sjálfsögðu tökum við vel á móti nýjum iðkendum. Að auki langar okkur til að bjóða alla eldri félaga sem hafa tekið sér frí frá æfingum, hvort sem um lengri eða skemmri tíma er að ræða innilega velkomna aftur.

Sjáumst!

Stjórnin..

>> meira

4. september 2008 | G.S
Karatebækur og belti
Nokkrir iðkendur áttu eftir að fá karatebók og belti.
Hægt er að nálgast þetta á skrifstofunni.
Talaðu við næsta þjálfara og hann kippir þessu í liðinn.

Stjórnin.. . .

>> meira

3. september 2008 | G.S
Fjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ
Fjarnám ÍSÍ á 1stigi þjálfaramenntunarinnar fer af stað mánudaginn 22. september næstkomandi. Um er að ræða 60 stunda nám, metið til tveggja eininga enda um sama nám að ræða og kennt er í ÍÞF 102 í framhaldsskólum landsins.
>> meira

31. ágúst 2008 | G.S
Vetrarnámskeiðin byrja 8. september.
Vetrarnámskeið karatedeildar byrja 8september í öllum flokkum byrjenda og framhaldshópa.
Stundaskrá verður tilbúin í vikunni og verður birt hér á netinu.
Fram að því gildir stundatafla sumaræfinga.

Strjórnin. . .

>> meira

9. júlí 2008 | G.S
ATH breyttur æfingatími 10. júlí.
Af óviðráðanlegum ástæðum breytist æfingatíminn 10júlí og verður því frá kl. 20:00-21:15

ATH. þetta á aðeins við þetta eins skipti.

Gunnlaugur
Þjálfari.

>> meira

9. júlí 2008 | G.S
Ungur og efnilegur
Arnór Ingi Sigurðsson fékk úthlutað styrk úr sjóðnum Ungir og efnilegir á vegum IBH núna í júní.
Úthlutunin mun hjálpa honum á næstkomandi vetri að vinna að sínum markmiðum.

Deildin óskar honum til hamingju með styrkinn.. . .

>> meira

9. júlí 2008 | G.S
Gunnlaugur Sigurðsson fær aukin dómararéttindi EKF
Gunnlaugar Sigurðsson, 3Dan Haukum, tók þátt í dómaranámskeiði EKF dagana 12-15. júní í Maribor, Slóveníu og stóðst bæði Judge-B réttindi í kumite og hækkaði sig upp í Judge-A réttindi í kata.

Hann er nú með hæstu réttindi íslendings í kata og annar í röðinni með kumite réttindi útgefin af EKF.

Óskum honum til hamingju með áfangann.

Frétt af www.kai.is.

>> meira

9. júlí 2008 | G.S
Opnar æfingar á vegum KAI í sumar
Karatesambandið stendur fyrir opnum æfingum í sumar.

Dagskráin er sem hér segir

Kata:
Þriðjudaginn 26ágúst kl. 18 í KFR, Gretar Halldórsson

Æfingarnar eru opnar fyrir alla 14. ára og eldri sem hug hafa á að keppa í kata.

Kumite:
Fimmtud.

>> meira

2. júní 2008 | G.S
Leiðrétting - Sumaræfingar 2008
Það áttu sér stað mistök þegar sumaræfingatíminn var tilkynnturEn hér kemur leiðréttur æfingatími.

Mánudagar
18:15-19:30

Miðvikudagar
18:15-19:30

Fimmtudagar
18:15-19:30

Sumaræfingar eru fyrir 14 ára og eldri.

Verð 8.500 kr. fyrir sumarið eða 3.500 kr. fyrir mánuð í senn.

Stjórnin..

>> meira

2. júní 2008 | G.S
Sumaræfingar 2008
Sumaræfingar karatedeildar verða sem hér segir.

Mánudagar
18:15-19:30

Þriðjudagar
18:15-19:30

Fimmtudagar
18:15-19:30

Sumaræfingar eru fyrir 14 ára og eldri.

Verð 8.500 kr.

Stjórnin.
. . .

>> meira

28. maí 2008 | G.I
Síðasta æfing FB1
Síðasta æfing hjá FB1 er miðvikudaginn 28maí.
Hittumst svo mánudaginn 2. júní í grillpartý á Ásvöllum kl.

>> meira

28. maí 2008 | G.S
Grillpartý FB1, FB2 og FB3
Við ættlum að hittast, skemmta okkur, borða pylsur og drekka svala.

Mæting kl18 á Ásvöllum mánudaginn 2. júní með góða skapið og von um gott veður :)

Þjálfarar
FB1, FB2 og FB3. .

>> meira

14. maí 2008 | H.Þ
Síðasti tíminn hjá Karateskólanum
Síðasti tíminn í karateskólanum í vor, byrjum aftur næsta haust.

Við endum á að fara saman á skauta börn og foreldrar sunnudaginn 18maí kl. 14.00.
Hittumst í Egilshöll kl. 14.00 og skautum í ca 1.

>> meira

6. maí 2008 | H.Þ
Karateskólinn - gönguferð
Í næsta tíma 7maí förum við í gönguferð.

Verið klædd eftir veðri, og takið með með nesti (drykk og ávöxt eða brauð) leggjum af stað frá Ásvöllum kl.17.00 og komum til baka ca 18.30

Muna góða skapið
Þjálfari
. . .

>> meira

6. maí 2008 | K.Ó
Nýr æfingatími hjá byrjendum B1
Þeir iðkendur sem æfðu undir harðri hendi Kristjáns og Sigríðar í hópnum B1 núna á vorönn hafa færst upp um hóp og heitir sá hópur FB1 með Guðmund Inga fremstan í broddi fylkingar.

Æfingatímarnir eru þá sem hér segir:
Mánudagar klukkan 17:00 – 18:00
Miðvikudagar klukkan 17:00 – 18:00
Fimmtudagar klukkan 18:00 – 19:00

Kveðja
Kristján og Sigríður
Þjálfarar
. . .

>> meira

30. apríl 2008 | G.S
Æfingar falla niður í dag og 1. maí
Allar æfingar falla niður í dag miðvikudag 30apríl vegna kvennakvölds Hauka.

Auk þess er húsið lokað 1. maí vegna frídags verkalýðsins.

Stjórnin. .

>> meira

17. apríl 2008 | G.S
3. GrandPrix mót KAÍ 2007-2008
3GrandPrix mót KAÍ 2007-2008 verður haldið laugardaginn 3. maí í Fylkishöllinni, Árbæ. Starfsmenn og dómarar mæti kl.
>> meira

17. apríl 2008 | G.S
Úrslit NM2008
Norðurlandameistaramótið í karate 2008 fór fram í Laugardalshöllinni, laugardaginn 12apríl. Mótið hófst kl. 10.00 og lauk rúmlega 18.
>> meira

17. apríl 2008 | G.S
Æfingabúðir með sensei Steve Ubl
Sensei Steve Ubl verður með æfingabúðir hjá Karatedeild Breiðabliks núna um helgina.

Ubl sensei hóf æfingar árið 1967 og var persónulegur nemandi hjá Nakayma sensei frá 1972-1977, fyrst þegar hann var búsettur í Japan en síðar ferðaðist hann reglulega til Japans til æfinga eftir að hann flutti aftur til USAÁ seinni hluta áttunda áratugarins fór Ubl sensei að æfa meir og meir eftir eigin höfði og hugmyndum án tenginga við karatesamtök. Árið 2006 tókst WTKO að sannfæra hann um að þeirri þekkingu sem hann býr yfir yrði hann að koma til leiðar til komandi kynslóða og úr varð að hann gekk til liðs við WTKO (World Traditional Karate Organisation).

Það er mikill fengur að fá slíkan mann hér til lands en hann ferðast langan veg frá USA - San Diego til að miðla til okkar sinni miklu visku í karate.

Þetta er hreinlega einstak tækifæri sem enginn má láta fram hjá sér fara. Allar æfingar fara fram í íþróttahúsi Lindaskóla

Stundataflan:

18.

>> meira

10. apríl 2008 | G.S
Norðurlandameistaramótið í Karate 2008
Norðurlandameistaramótið í Karate 2008 verður haldið laugardaginn 12apríl í Laugardalshöllinni og hefst kl. 10.00. Áætluð mótslok eru kl.
>> meira

30. mars 2008 | G.S
Fréttir frá Írlandi
Strákarnir okkar, þeir Ari Sverrisson, Andri Sveinsson og Guðbjartur Ísak tóku þátt á opna írska meistaramótinu í dag (Irish open) Mótið var heldur fámennara en búist hafði verið við og voru 5-10 keppendur í flestum flokkum. Keppt var í tveimur þyngdarflokkum karla, -/+ 70 kg og kepptu Ari og Andri í +70 kg. og Ísak í -70 kg.
>> meira

30. mars 2008 | G.S
Ari með silfur og bronz
Ari Sverrisson lauk keppni í einstaklingskeppni í gær með stórgóðum árangri.
Hann endaði í 2 sæti í opna flokknum og í 3 sæti í +70kgflokk.

Óskum honum til hamingju með þetta.

Stjórnin. . .

>> meira

29. mars 2008 | G.S
Ísak með silfur
Guðbjartur Ísak var rétt í þessu að ljúka keppni í -70kg junior flokki.
Viðureignin endaði í bráðabana og vann andstæðingurinn 2-1.
Engu að síður frábær árangur

Óskum honum til hamingju með þetta.

Stjórnin. . .

>> meira

29. mars 2008 | G.S
Ísak í úrslit á opna Írska
Guðbjartur Ísak sem er nú við keppni á opna Írska var rétt í þessu að tryggja sig í keppni um fyrsta sæti í -70kg junior flokki.
Hann vann fyrstu viðureignina 3-0 og þá næstu einnig með 3-0.

Stjórnin. . .

>> meira

19. mars 2008 | G.S
Opin MMA æfing hjá Björkunum.
Tae Kwon Do deild Bjarkanna hefur boðið okkur að koma á opna MMA æfingu sem þau standa fyrir nklaugardag. Æfingin hefst kl. 14 og fer fram í æfingasal TKD deildar á Haukahrauni bakvið Iðnskólann.
>> meira

9. mars 2008 | K.Ó
Haukar Íslandsmeistarar í hópkata
Íslandsmótið í kata var haldið laugardaginn 8mars s.l. og áttu Haukarnir fjóra keppendur á mótinu, þá Carlos Ragnar, Guðbjart Ísak, Kristján Ó. og Pálmar Dan.
>> meira

6. mars 2008 | G.S
Íslandsmeistaramót fullorðinna í kata 2008
Íslandsmeistaramót fullorðinna í kata 2008 verður haldið í Íþróttahúsi Hagaskóla laugardaginn 8mars og hefst kl. 10.00. Húsið opnar kl.
>> meira

6. mars 2008 | G.S
Býr dómari í þér?
Dómgæsla er tilvalin leið fyrir allt karateáhugafólk að vera hluti af þessum frábæra sporti og samtímis starfa fyrir félagið sitt

Þann 22. mars nk. kl.

>> meira

11. febrúar 2008 | G.S
Íslandsmót unglinga í kata
Íslandsmeistaramót unglinga í kata 2008 verður haldið í íþróttahúsinu Austurbergi,
sunnudaginn 24febrúar kl. 10:00.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

Einstaklingskeppni í kata:
1) Kata stráka 13 ára (f. 1995)
2) Kata stúlkna 13 ára (f.

>> meira

11. febrúar 2008 | G.S
Íslandsmót unglinga í kata
Íslandsmeistaramót unglinga í kata 2008 verður haldið í íþróttahúsinu Austurbergi,
sunnudaginn 24febrúar kl. 10:00.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

Einstaklingskeppni í kata:
1) Kata stráka 13 ára (f. 1995) 2) Kata stúlkna 13 ára (f.

>> meira

9. febrúar 2008 | G.S
Æfingar falla niður
Æfingar frá kl11-12 falla niður 10. febrúar vegna Íslandsmóts Barna sem fram fer í Smáranum í Kópavogi.

Stjórnin. .

>> meira

3. febrúar 2008 | G.S
Frábær árangur á Opna Skandinavíska mótinu í Osló
Það var fjör í Bygdöhus í Osló á laugardaginn en þar fór fram opna Scandinavíska meistaramótið í karateKeppt var í kata, hópkata, kumite og kumiteliðakeppni. Íslensku keppendurnir voru 32 talsins af 368 keppendum á mótinu sem komu frá 18 þjóðlöndum. Keppendurnir komu heim með 4 silfur og 11 brons frá mótinu.
>> meira

3. febrúar 2008 | G.S
3. Bikarmót KAÍ 2007-2008
Bikarmótaröð vetrarins lauk í dag með spennandi móti í VíkurskólaNýir bikarmeistarar voru krýndir í mótslok þau Hekla Helgadóttir og Tómas Lee Róbertsson bæði í Þórshamri og óskum við þeim innilega til hamingju með titlana! Niðurstaðan mótaraðarinnar var eftirfarandi:


KONUR
1. Hekla Helgadóttir Þórshamri 42
2. Helena Montazeri Víkingur 38
3-4.

>> meira

3. febrúar 2008 | G.S
Æfingar falla niður sunnudaginn 3. febrúar
Allar æfingar falla niður í dag sunnudaginn 3febrúar vegna árshátíðar karatedeildar sem haldin var laugardaginn 2. febrúar.

Stjórnin.. .

>> meira

28. janúar 2008 | Á.
Árshátíð 2008
Nú er loksins komið að því sem allir hafa beðið eftir........

...........Árshátíð Karatedeildar Hauka..........

Það má með sanni segja að árshátíðirnar hjá KDH eru orðnar landsþekktar fyrir mikinn glaum og taumlausa gleði, og
er hátíðin í ár engin undatekning frá því.

Þemað í ár er Diskó og viljum við hvetja alla til að grafa djúpt í skápa sína, nú eða skápa foreldra sinna og
finna þar glansgallann Við munum að sjálfsögðu veita verðlaun fyrir besta búninginn.

Hin rómuðu skemmtiatriði deildarinnar verða að sjálfsögðu á sínum stað og hver veit nema eitthvað nýtt líti dagsins ljós.

Í ár er það saumaklúbburinn Lykkjurnar sem sjá um undirbúning hátíðarinnar, og má því bóka að maturinn verður ekki af verri endanum.

Miðaverði er að sjálfsögðu stillt í hóf og er miðinn á litlar 3.000 kr sem verður að teljast algjört gjafverð miðað við allt sem í boði er.

Okkur hlakkar til að sjá ykkur í Diskógírnum í hátíðarsal KDH að Ásvöllum 2 Febrúar kl 20:00.

Þeir sem ætla kaupa miða eru beðnir um að skrá sig á blað fyrir frama Karatesalinn okkar, miðasalan verður svo opin á skrifstofu deildarinnar á Fimmtudagin 31 janúar
á milli kl:20 og 21.


P.s og svo muna allir að eftir kl:23:00 er 18 ára aldurstakmark.........

. .

>> meira

22. janúar 2008 | G.S
Æfingabúðir með Amos sensei
Richard Amos sensei verður með æfingabúðir í Lindaskóla 25-27janúar nk. Amos sensei er einn af fremstu shotokan kennurum í dag. Hann æfði í 10 ár í japan í aðalstöðvum JKA og á þeim tíma kláraði hann 3 ára kennaranám.
>> meira

21. janúar 2008 | G.S
Scandinavian Open 2008
Fimmtudaginn 24janúar halda fjórir keppendur ásamt þjálfurum á Opna Skandinavíska meistaramótið sem fram fer í Osló 26. janúar. Keppendurinn eru Arnór Ingi Sigurðsson, Guðbjartur Ísak Ásgeirsson, Kristján Ó.
>> meira

21. janúar 2008 | G.S
Íslandsmeistaramót barna í kata
Meistaramót barna í kata 2008 verður haldið í íþróttahúsinu Smáranum, Kópavogi,
sunnudaginn 10febrúar kl. 10:00.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

1. Kata barna 8 ára og yngri
2. Kata barna 9 ára
3. Kata barna 10 ára
4. Kata krakka 11 ára
5. Kata krakka 12 ára
6. Hópkata krakka 8 ára og yngri
7. Hópkata krakka 9 ára og 10 ára
8. Hópkata krakka 11 ára og 12 ára

m.v. fæðingarár (1996-)

Mæting: kl.

>> meira

21. janúar 2008 | G.S
3. Bikarmót KAI
Þriðja Bikarmót KAI 2007-2008 fer fram 2febrúar nk. í Víkurskóla.
Mótið hefst klukkan 10 og er mótslok áætluð um kl. 14.

Nánar auglýst á www.kai.is

Stjórnin.

>> meira

21. janúar 2008 | G.S
Arnór vinnur á Grand Prix II
Annað GrandPrixmót vetrarins fór fram í gær í íþróttamiðstöðinni að VarmáÁ milli sextíu og sjötíu keppendur mættu til keppni í kata og kumite og öttu kappi af miklum móð.

Haukar áttu 4 keppendur á mótinu. Þeir kepptu annað hvort í kata, kumite eða hvoru tveggja.

Helst ber að nefna að Arnór Ingi keppti í kumite í flokki pilta (kadett) 16 og 17 ára og gerði sé lítið fyrir og vann flokkinn af miklu öryggi. Eftir þetta mót þá eru þeir þrír sem deila efsta sætinu og kemur því ekkert annað en sigur til greina á næsta móti.

Auk Arnórs kepptu þeir Carlos, Guðmundur Hjálmar og Kristófer á mótinu.

>> meira

16. janúar 2008 | G.S
Árshátíð Karatedeildar Hauka
Hin margrómaða árshátíð Karatedeildar Hauka fer fram laugardaginn 2febrúar nk. í hátíðarsal Hauka að Ásvöllum.

Eins og venjulega verður engu til sparað til að gera þetta að glæsilegasta viðburði ársins í Hafnarfirði.

Taka kvöldið frá, því þú vilt ekki missa af þessu!!

Nánar auglýst síðar.

Lykkjurnar árshátíðanefnd.
. .

>> meira

11. janúar 2008 | G.S
Karatedagurinn 2008
Karatedagurinn verður haldinn í Smáranum, Kópavogi, sunnudaginn 13janúar.

Dagskrá:

Æfingar
kl. 12.00 - 15.00
3 x 50 mín æfingar

Fyrir alla 12 ára og eldri úr öllum félögum.

Þjálfara verða:
Einar Hagen, 4. Dan Shotokan
Halldór Svavarsson, 4.

>> meira

6. janúar 2008 | G.S
Sensei Jan Spatzek kemur í heimsókn
Sensei Jan Spatzek ætlar að heimsækja okkur dagana 7-9janúar og kenna á nokkrum æfingum.
Hann mun kenna á æfingum hjá eftirfarandi hópum, KU, FU1 og M1.

Stjórnin. . .

>> meira

6. janúar 2008 | G.S
Byrjendanámskeiðin hefjast 14. janúar
Mánudaginn 14janúar hefjast byrjendanámskeið í öllum flokkum. Eins og alltaf þá er gríðarlega mikilvægt fyrir starfsemi félagsins að fá inn fjölda nýrra iðkenda í byrjendahópana. Við biðjum því alla félagsmenn til að hvetja vini og vandamenn til að koma og spreyta sig því að venju er boðið upp á fría prufutíma.

Stjórnin.

>> meira

6. janúar 2008 | G.S
Æfingar hefjast hjá framhaldshópum mánudaginn 7. janúar
Nú fer starfið hjá okkur í fullan gang mánudaginn 7janúar skv. nýrri stundaskrá sem komin er á vefinn.

Stjórnin.

>> meira

1. janúar 2008 | G.S
Íþróttamaður Hauka 2007
Guðbjartur Ísak er Íþróttamaður Hauka 2007Guðbjartur Ísak hefur frá upphafi karateiðkunar sinnar skarað framúr jafnöldrum sínum. Hann hefur stundað íþróttina af miklu kappi og uppskorið samkvæmt því. Hann hefur reynst góð fyrirmynd yngri iðkenda Karatedeildarinnar.
>> meira

29. desember 2007 | G.S
Karatemaður og -kona ársins 2007
Guðbjartur Ísak Ásgeirsson, Haukum og Helena Montazeri, Víkingi voru valin karatemaður og karatekona ársins 2007.

Helsti árangur Guðbjarts Ísaks á árinu:

1sæti -70 kg flokkur á ÍM í kumite
2. sæti í opnum flokki á ÍM í kumite
1. sæti með liði sínu á ÍM í kumite
3.

>> meira

29. desember 2007 | G.S
Karatemaður Hauka 2007
Guðbjartur Ísak Ásgeirsson, var valin karatemaður Hauka 2007.
Að auki var hann útnefndur til Íþróttamanns Hafnarfjarðar.

Helsti árangur Guðbjarts Ísaks á árinu:

1sæti -70 kg flokkur á ÍM í kumite
2. sæti í opnum flokki á ÍM í kumite
1. sæti með liði sínu á ÍM í kumite
3.

>> meira

18. nóvember 2007 | G.S
Íslandsmeistarar á YouTube
Ásgeir okkar Ásgeirsson hefur klippt saman video frá Íslandsmótinu og skellt á YouTube.
. . .

>> meira

11. nóvember 2007 | G.S
Haukar Íslandsmeistarar
Íslandsmeistaramótið í kumite fór fram í Fylkishöllinni í gærHaukar áttu þar 9 keppendur. En þau stóðu sig öll frábærlega. Liðið stóð uppi sem Íslandsmeistarar félaga með 22 stig, en næsta félag var með 14 stig.

Guðbjartur Ísak vann í -70kg.

>> meira

31. október 2007 | G.S
Arnór Íslandsmeistari Unglinga
Íslandsmeistaramót unglinga fór fram í Smáranum 28október sl. Haukar áttu aðeins tvo keppendur á mótinu að þessu sinni. En það voru Arnór Ingi Sigurðsson og Guðmundur Hjálmar Egilsson.
>> meira

5. október 2007 | G.S
Vigtun fyrir Grand Prix mót
Vigtun 12-15 ára stráka fer fram í Smáranum á mánudag (8/10) kl18-19:00.

kveðja,
Karatesamband Íslands
Mótanefnd
Indriði Jónsson. . .

>> meira

4. október 2007 | G.S
Æfingar 4. október
Allar æfingar í fimmtudaginn 4okt. færast yfir á föstudaginn 5. okt.
>> meira

2. október 2007 | G.S
1. Bikarmót KAÍ 2007 - 2008 - staðan
1Bikarmót KAÍ 2007 - 2008 Fyrsta bikarmótið í mótaröð vetrarins fór fram í íþróttahúsi Fylkis sunnudaginn 29. september. Keppendur voru alls 14 og áttu Haukar 2 keppendur.
>> meira

2. október 2007 | G.S
Grand Prix mótaröðin 2007 - 2008
Fyrsta mótið í GrandPrix mótaröð vetrarins verður á Akranesi sunnudaginn 14október. Mótanefnd gerir eina breytingu en hún er sú að í kumiteflokkum 12-15 ára verður vigtað og síðan skipt í 12-13 ára léttari og 12-13 ára þyngri og 14-15 ára léttari og 14-15 ára þyngri. Vigtun mun fara fram á mánud.
>> meira

30. september 2007 | G.S
Æfingabúðir með Sensei Poh Lim
Karatefélagið Þórshamar stendur fyrir æfingabúðum með sensei Poh Lim 6Dan næstu helgi.

Æfingar eru sem hér segir.

Föstud. 5. okt.
18:00 – 19:00 Unglingar 9 –14 ára
19:00 – 20:00 9.

>> meira

27. september 2007 | .
Opnar kumite æfingar fyrir alla 16 ára og eldri
Staður: Karatefélag Reykjavíkur, Laugardalslaug
Dagsetning: Þriðjudagana 02.10.2007 og 09.10.2007
Kl: 18:10 - 19.10
Þjálfari: Ingólfur Snorrason. . .

>> meira

27. september 2007 | G.S
Bikarmót I 2007-2008
Fyrsta bikarmót vetrarins verður haldið í Íþróttahúsi Fylkis sunnudaginn 30september kl. 10:00 - 13.00.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

• Kumite karlar +74 kg
• Kumite karlar -74 kg
• Kumite konur
• Kata konur
• Kata karlar

Karlar sem keppa í kumite mæti í vigtun kl. 9:15-9:30..

>> meira

27. september 2007 | G.S
Dómaranámskeið á vegum KAÍ
Javier Escalante, A-karatedómari hjá EKF, verður með dómaranámskeið laugardaginn 29september á vegum KAÍ fyrir alla sem hug hafa á að öðlast landsréttindi í kata og/eða kumite.

Skriflegi hlutinn fer fram í Fundaraðstöðu ÍSÍ, 3. hæð Íþróttamiðstöðinni Laugardal frá kl. 10.00 - 15.00.

>> meira

24. september 2007 | G.S
Ari á Banzai Cup
Ari Sverrisson landsliðs- og keppnismaður Hauka lenti nú um helgina í 4sæti í -75kg. flokki á opna Banzai mótinu í Þýskalandi. Hann tapaði fyrir Tyrkja í keppni um 3.
>> meira

20. september 2007 | S.B
Vinningshafi í leik Víkurfrétta
Vinningshafi í leik Víkurfrétta og Karatedeildar Hauka er Aðalbjörn JóelssonNafn hans var dregið upp úr potti lesenda Víkurfrétta sem höfðu sent Karatedeildinni tölvupóst. Í verðlaun var byrjendanámskeið haustið 2007 í Karate ásamt glæsilegum karategalla. Um leið og við óskum Aðalbirni til hamingju viljum við þakka lesendum Víkurfrétta sem sendu okkur tölvupóst fyrir þátttökuna og hvetjum þá til að koma til okkar í einn prufutíma þeim að kostnaðarlausu..
>> meira

2. september 2007 | G.S
Sjáumst hress á æfingu
Kæri iðkandi, við viljum bjóða þig velkomin(n) í karateVið hlökkum til að eiga stundir með þér í vetur. Sumar þessara stunda verða erfiðar, aðrar pirrandi, einhverjar meira krefjandi en aðrar, en allar verða þær skemmtilegar á sinn hátt. Því öll vitum við að ekkert er eins skemmtilegt og gefandi að finna að allt erfiðið er farið að skila árangri.

Fyrir utan fastar æfingar munum við bjóða upp á úrval mismunandi æfinga.

>> meira

29. ágúst 2007 | G.S
Velkomin í karate
Ný stundaskrá fyrir veturinn er komin á netiðÞú getur fundið hana hér til vinstri undir tenglinum Stundaskrá.

Við viljum sérstaklega hvetja nýja iðkendur/forráðamenn til að kynna sér vel efnið undir tenglunum reglur, algengar spurningar, kihon, kata og kumite ofl.

Námskeiðin hefjast svo samkvæmt stundaskrá 3. september og hlökkum við til að sjá alla gömlu félagana aftur eftir sumarfrí, og að sjálfsögðu tökum við vel á móti nýjum iðkendum. Að auki langar okkur til að bjóða alla eldri félaga sem hafa tekið sér frí frá æfingum, hvort sem um lengri eða skemmri tíma er að ræða innilega velkomna aftur.

Sjáumst!

Stjórnin..

>> meira

28. ágúst 2007 | G.S
Stundaskráin
Stundaskráin verður birt á vefnum eigi síðar en 29ágúst.

Nú ættu allir að vera í startholunum með hreinan og fínan galla. Námskeiðin hefjast svo samkvæmt stundaskrá 3. september.

Sjáumst!!

Stjórnin.

>> meira

22. ágúst 2007 | G.S
Haustönn
Verið er að leggja lokahönd á stundaskrá haustannar og ætti hún að koma hér á vefinn innan skamms

Við viljum hvetja alla til að setja sig í startholurnar og taka fram gallana eftir sumarfrí. Námskeiðin munu svo hefjast samkvæmt stundaskrá 3. september.

Sjáumst!!

Stjórnin.

>> meira

29. júní 2007 | G.S
Opnar kumiteæfingar hjá Víkingi
Vicente Carrasco er að bjóða upp á opnar kumiteæfingar á eftirfarandi dögum:

* Miðvikudaginn 27júní , kl. 19:00 – 20:30
* Miðvikudaginn 4. júlí , kl.

>> meira

4. júní 2007 | G.S
Æfingabúðir með Kato Sensei
Hinar árlegu æfingabúðir á Laugarvatni verða ekki að þessu sinniNýr rekstraraðili er kominn, og tókst deildinni ekki að tryggja sér pláss fyrir æfingarnar. Aðrir kostir voru skoðaðir, en þóttu ekki físilegir.

Því munum við slá upp æfingum hér í bænum. Æfingarnar fara allar fram að Ásvöllum.

Æfingarnar verða sem hér segir,

Laugardagurinn 23.

>> meira

3. júní 2007 | G.S
Sumaræfingar 2007
Sumaræfingar karatedeildar verða sem hér segir.

Mánudagar 18:00-19:30 (kumite - annan hvern mánud.)
Júní - 4 og 18
Júlí - 2, 16 og 30
Ágúst - 13 og 27

Þriðjudagar
18-19:30

Fimmtudagar
18-19:30

Verð 8.000 kr.

Stjórnin.. . .

>> meira

22. maí 2007 | G.S
Guðbjartur Ísak tvöfaldur Grand Prix meistari
Þriðja og síðasta GrandPrix mótið veturinn 2006-2007 var haldið í Fylkishöllinni laugardaginn 19maí. Mótið hófst kl. 11.00 og lauk um kl.
>> meira

16. maí 2007 | G.S
Grand Prix 3 og uppskeruhátíð
Síðasta GrandPrix mót vetrarins fer fram á laugardaginn í íþróttahúsi FylkisMótið hefst kl. 10:30 og er mæting keppenda eigi síðar en kl 10:00. Dómarar og starfsmenn mæta eigi síðar en 9:30.
>> meira

15. maí 2007 | G.S
Gráðun hjá FB1 og frí á fimmtudaginn.
Fimmtudaginn 17maí, Uppstigningadag er frí hjá öllum hópum.

Mánudaginn 21. maí er próf hjá FB1 (krakkar sem ekki hafa tekið próf á önninni).

Þriðjudaginn 29. er próf hjá FB2.

Stjórnin.

>> meira

13. maí 2007 | G.S
Skautaferð karateskólans
Karateskólinn lauk starfi sínu með ferð í skautahöllinaHólmfríður og Sigríður fóru fyrir hópnum og nutu aðstoðar foreldra. Krakkarnir skemmtu sér frábærlega.

Þökkum þeim fyrir þátttökuna í skólanum og hlökkum til að sjá þau aftur að hausti.

Myndir komnar á síðuna.

Stjórnin.. .

>> meira

13. maí 2007 | G.S
Guðbjartur Ísak bikarmeistari
3Bikarmót KAÍ 2006 - 2007 fór fram á Ásvöllum laugardaginn 28. apríl og hófst kl. 14:00.
>> meira

11. maí 2007 | G.S
GrandPrix 3
Karatesambandið hóf nýja mótaröð í haust, GrandPrixMótaröðin er fyrir iðkendur á aldrinum 12-17 ára og er keppt í kata og kumite (þarf ekki að keppa í báðu). Keppnisröðin samanstendur af þremur mótum í vetur. Þátttökugjald er 1.000 kr*.
>> meira

11. maí 2007 | G.S
Risa-Landsmót UMFÍ 2007 karatemót
Að þessu sinni verður keppt í karate á Risa-Landsmóti UMFÍ í KópavogiKaratemótið fer fram sunnudaginn 8. júlí og hefst kl. 9:30 og er áætlað að því verði lokið fyrir kl.
>> meira

11. maí 2007 | H.Þ
Síðasti tíminn í karateskólanum og skautar
Síðasti tíminn í karateskólanum í vor var 9.maí, byrjum aftur næsta haust.

Við endum á að fara saman á skauta börn og foreldrar sunnudaginn 13maí kl. 15.00.
Hittumst í Egilshöll kl. 15.00 og skautum í ca.

>> meira

27. apríl 2007 | G.S
Æfingar 30. apríl og 1. maí
Kvennakvöld handknattleiksdeildarinnar verður haldið mánudaginn 30apríl nk. Af þeim sökum falla allar æfingar niður þann dag.

Svo viljum við einnig benda á að Ásvellir eru lokaðir daginn eftir vegna frídags verkamanna 1. maí.

Stjórnin..

>> meira

20. apríl 2007 | G.S
Gráðun hjá FU1 og M1
Gráðanir fyrir hópana FU1 og M1 verða haldnar fimmtudaginn 26apríl nk.
Auka æfingar vegna gráðunar þessara hópa verða haldnar sem hér segir,

Mánudagur 23. apríl
kl. 19:00-20:30 - M1
kl.

>> meira

16. apríl 2007 | G.S
Íslandsmótið í kata
Íslandsmótið í Kata fór fram í Hagaskóla laugardaginn 14apríl sl.
Haukar áttu fimm keppendur á mótinu í einstaklings í karlaflokki og auk þess eitt lið í karlaflokki.
Ágætis árangur náðist á mótinu, en í liðakeppninni kepptum við til úrslita en urðum að láta okkur annað sæti duga.
Guðbjartur Ísak komst svo í þriðja sæti í einstaklingskeppninni.

Nokkrar myndir komnar á síðuna.

Deildin óskar keppendum til hamingju með árangurinn.. . .

>> meira

9. apríl 2007 | G.S
Sameiginleg árshátíð karatefélaganna
Sameiginleg árshátíð karatefélaganna verður haldin í Smáranum, laugardaginn 14apríl nk.
Mikið verður um dýrðir og skemmtiatriði á heimsmælikvarða.
Boðið verður upp á hlaðborð sem svignar af kræsingum.
Happadrætti með fjölda vinninga.
Fullt af skemmtilegu fólki, ég og ÞÚ!

18 ára aldurstakmark.
Miðaverð 2.500 kr.
Þema kvöldsins: Svart og hvítt

Miðasala hafin
Miðar seldir 10. – 12. apríl í karatefélögunum
Karatefélögin síkátu

Sjá auglýsingu hér.

>> meira

9. apríl 2007 | G.S
Æfingar með sensei Jan Spatzek 7. Dan
Dangana 10-12apríl nk. mun sensei Jan koma í heimsókn til okkar og sjá um kennslu hjá hópunum FU1 og M1.

Meðan á heimskókninni stendur gerum við eftirfarandi breytingar á æfingatímum;

Þriðjudagurinn 10. apríl
19:30-21:00 - M1
21:00-22:15 - FU1

Miðvikudagurinn 11.

>> meira

9. apríl 2007 | G.S
ÍM-KATA 2007
Íslandsmeistaramótið í kata 2007 verður haldið í Íþróttahúsi Hagaskóla laugardaginn 14apríl kl. 14:00

Keppt verður í eftirfarandi greinum:
Kata kvenna.
Kata karla.
Hópkata kvenna (3ja kvenna sveitir).
Hópkata karla (3ja manna sveitir).

Mætum öll og fylgjumst með bestu karatemönnum landsins.

Áætluð mótslok kl. 17.00.

Aðgangur ókeypis!
.

>> meira

27. mars 2007 | G.S
Æfingabúðir með Sensei Kawasoe
Árleg heimsókn Masao Kawasoe, 8dan, fer fram helgina 30. mars - 1. apríl og verða æfingar sem segir hér að neðan.
>> meira

22. mars 2007 | A.S
Opna Jótlandsmeistaramótið í karate
Ari Sverrisson lenti í 3sæti í -75 kg flokki á Opna Jótlandsmeistaramótinu í karate. Mótið er það fyrsta á keppnistímabilinu og tók það Ara smá tíma að finna sinn rétta gír. Hann varð því að láta sér nægja þriðja sætið að þessu sinni eftir að hafa unnið bronsbardagann öruggt.
>> meira

20. mars 2007 | G.S
Æfingabúðir með landsliðsþjálfaranum Alan Busk
Alan Busk landsliðsþjálfari í kumite verður með kumiteæfingar helgina 24- 25. mars næstkomandi.

Æfingarnar eru opnar fyrir alla 14 ára og eldri sem hug hafa á keppni í kumite.

>> meira

17. mars 2007 | K.Ó
Unglingameistaramótið í Kata
Sunnudaginn 11mars s.l. fór fram síðasta Unglingameistaramótið í kata í sögu KAÍ. Því hér eftir mun mótið heita Íslandsmeistaramót unglinga í kata.
Haukarnir áttu sína þátttakendur á mótinu, eða 8 talsins.
Haukarnir létu þó verðlaunin að miklu leiti afskiptalaus þó allir hafi staðið sig vel.
Það ber þó helst að nefna silfurverðlaun Guðbjarts Ísaks í kata juiora fæddir 1987-1990 og glæstan árangur hópkataliðsins sem var skipað þeim Kristjáni, Ísaki og Pálmari.

>> meira

2. mars 2007 | G.S
Aðalfundur
Aðalfundur karatedeildar verður haldinn miðvikudaginn 7mars nk. kl. 18:00.
Venjuleg aðalfundastörf.

Æfingar falla niður á milli 18:00-20:00 (Karateskóli meðtalinn).

Stjórnin..

>> meira

27. febrúar 2007 | G.S
Æfingabúðir með Sensei Poh Lim
Ágætu félagar

Sensei Poh Lim er í heimsókn hjá okkur þessa viku og verður með æfingabúðir um helgina í Karatefélaginu Þórshamri Meðfylgjandi er auglýsing með dagskrá æfingabúðanna sem við viljum biðja ykkur um að hengja upp hjá ykkur og kynna félagsmönnum ykkar. Sjá auglýsingu hér.

Ath. að við bjóðum svartbeltingum innan ykkar raða að koma og æfa frítt á æfingabúðunum að þessu sinni.

Baráttukveðjur.

Stjórn Karatefélagsins Þórshamars.

>> meira

27. febrúar 2007 | G.S
Dómaranámskeið í kata
Dómaranámskeið í kata.

Karatesambandið gengst fyrir dómaranámskeiði í kata þriðjudaginn 6mars sem hefst kl. 18.00 og lýkur um kl. 21.30.
Námskeiðið fer fram í æfingahúsnæði Karatefélags Reykjavíkur, Sundlaugarhúsinu Laugardal.

Allir þeir sem hafa áhuga á dómgæslu í kata, keppni og þjálfun ættu að taka þátt í námskeiðinu.
Námskeiðið skiptist í þrennt, fyrirlestur þar sem farið verður í keppnisreglur WKF um kata, próf úr bóklega hlutanum og verklegar æfingar.
Þeir sem ætla í skriflega prófið verða að hafa undirbúið sig með því að lesa reglur WKF sem hægt er að sækja á heimssíðu KAÍ.
Allir sem taka þátt þurfa að hafa með sér karategi fyrir verklegu æfingarnar.
50 spurningar verða á skriflega prófinu sem eru valdar af spurningalista WKF sem hægt er að sækja á heimasíðu KAÍ.
Verklegar æfingar felast í að farið verður í eina grunnkata (Heian, Pinan, Geki Sai) og eina shitei kata úr grunnstílunum þremur sem æfðir eru á Íslandi og þátttakendur æfa sig í að meta kata.

Til að fá réttindi sem meðdómari (Judge) þarf að svar 40-44 spurningum rétt og kunna shitei kata úr eigin stíl auk einnar grunnkata úr öðrum stíl.
Til að fá réttindi sem dómari (Referee) þarf að svara 45-50 spurningum rétt og kunna shitei kata úr eigin stíl, shitei kata úr öðrum stíl og eina grunnkata úr öðrum stíl.
Þeir sem ætla að taka þátt í námskeiðinu skrái sig á reinhard@boksala.is fyrir sunnudaginn 4.

>> meira

10. febrúar 2007 | G.S
Æfingabúðir með Koike sensei
Æfingabúðir verða haldnar dagana 16.-18febrúar nk. En þá mun Sensei Yutaka Koike 5. Dan heimsækja okkur á Ásvelli.
>> meira

1. febrúar 2007 | G.S
Meistaramót Barna í Kata
Meistaramót barna í kata 2007 verður haldið í íþróttahúsinu Smáranum, Kópavogi,
sunnudaginn 11febrúar kl. 10:30.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

1. Kata barna 7 ára og yngri.
2. Kata barna 8 ára.
3. Kata barna 9 ára.
4. Kata barna 10 ára.
5. Kata krakka 11 ára.
6. Kata krakka 12 ára.
7. Hópkata krakka 8 ára og yngri.
8. Hópkata krakka 9 ára og 10 ára.
9. Hópkata krakka 11 ára og 12 ára.
m.v. almanaksár
Mæting: kl.

>> meira

1. febrúar 2007 | G.S
Nú fer hver að verða síðastur!!
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða á hina margrómuðu árshátíð karatedeildarinnar

Til að nálgast miða er hægt að hringja í Sirrý í síma 898-9159.

Tryggðu þér miða strax í dag.. . .

>> meira

1. febrúar 2007 | G.S
Árshátíð Karatedeildar Hauka
Hin margrómaða árshátíð Karatedeildar Hauka fer fram laugardaginn 3febrúar nk. klukkan 20:00 í hátíðarsal Hauka að Ásvöllum.

Eins og venjulega verður engu til sparað til að gera þetta að glæsilegasta viðburði ársins í Hafnarfirði.

Þema kvöldsins er Hollywood og að því tilefni eiga allir árshátíðagestir að mæta í gerfi einhverrar kvikmyndapersónu (fyrir hugmyndasnauða t.d. Men in black).

Á boðstólum verða Amerískar veislukræsingar.

Skemmtinefndin sér um að halda uppi stuðinu og svo má ekki gleyma happadrættinu.

>> meira

29. janúar 2007 | G.S
Opna Enska 2007
Helgina 20.-21janúar sl. fór Breska Karate Grand Prix fram í Kingston College. Haukar áttu þrjá keppendur á mótinu.
>> meira

25. janúar 2007 | G.S
Innanfélagsmóti frestað
Af óviðráðanlegum ástæðum þá frestast innanfélagsmótið sem halda átti nklaugardag.

Ný dagsetning verður auglýst síðar.

Stjórnin.. . .

>> meira

8. janúar 2007 | G.S
Byrjendanámskeið hefjast 15. jan., aðrar æfingar eru hafnar
Kæru félagar

Nú er komið að því að hrista af sér slenið og taka karategallann aftur út úr skápnum og hefja æfingar af krafti eins og Haukum er einum lagiðNýja stundaskráin tók gildi mánudaginn 2. janúar sl.

Byrjendanámskeið barna 7-12 ára hefst mánudaginn 15. janúar kl.

>> meira

8. janúar 2007 | G.S
Karatedagurinn 2007
Verður haldinn í Smáranum, Kópavogi, laugardaginn 13janúar.

Dagskrá:

3 x 50 mín æfingar kl. 12.00 - 15.00 með helstu þjálfurum landsins fyrir alla 12 ára og eldri úr öllum félögum.

Þjálfarar verða:
Ásmundur Ísak Jónsson, 4. Dan Shotokan
Helgi Jóhannesson, 4.

>> meira

1. janúar 2007 | G.S
Æfingar á nýju ári
Æfingar framhaldshópa hefjast aftur á morgun 2janúar samkvæmt stundaskrá.

Æfingar byrjenda hefjast svo aftur fimmtudaginn 11. janúar samkvæmt stundaskrá.

Stjórnin.. .

>> meira

1. janúar 2007 | G.S
Karatefólk Hauka
Á hverju ári útnefnir Karatedeild Hauka íþróttafólk sittAð þessu sinni eru það María Björg Magnúsdóttir og Ari Sverrisson. Þau eru bæði mjög vel að tilnefningunum komin.

María Björg Magnúsdóttir Karatekona Hauka 2006
María hefur í lagt stund á karate hjá deildinni um árabil. Hún hefur á þessum tíma vaxið og dafnað sem iðkandi og keppandi, auk þess að leggja stund á kennslu.
Á yfirstandandi ári varð hún Íslandsmeistari í Sveitakeppni Kvenna og er það í fyrsta sinn sem Haukar vinna þenna flokk.

Ari Sverrisson Karatemaður Hauka 2006
Ari hefur æft hjá okkur frá 1991 og hefur á þeim tíma vaxið og dafnað sem íþóttamaður og er í dag einn helsti keppnismaður deildarinnar og Íslands.

>> meira

1. janúar 2007 | G.S
Gleðilegt nýtt ár
Karatedeild Hauka óskar Hafnfirðingum og öllum iðkendum farsældar á nýju ári.

Stjórnin.. . .

>> meira

26. desember 2006 | G.S
Æfingar milli jóla og nýárs
Æfingar á milli jóla og nýárs verða sem hér segir.

14 ára og eldri æfa saman,

Miðvikudagurinn 27des. kl. 19:00-20:30

Stjórnin..

>> meira

24. desember 2006 | G.S
Gleðileg Jól
Karatedeild Hauka óskar öllum iðkendum og velunnendum Gleðilegra Jól og farsældar á komandi áriVið hlökkum til að sjá ykkur öll aftur á æfingu milli jóla og nýárs.

Stjórnin.. . .

>> meira

29. nóvember 2006 | G.S
Æfingar með Allan Busk landsliðsþjálfara
Allan Busk, landsliðsþjálfari í kumite, verður með æfingar 2og 3. desember næstkomandi í Æfingaaðstöðu KFR, í kjallara Sundlaugarhúsins Laugardal.
Æfingarnar eru opnar öllum 14 ára og eldri sem áhuga hafa á keppni í kumite.
Einnig verður ein æfing með kumiteþjálfurum félaganna þar sem farið verður í þær áherslur sem Allan Busk er með á æfingum sínum. Allir komi með gi og hlífar.
Þeir kumiteþjálfarar sem ætla að koma á æfinguna með Allan eru beðnir að senda staðfestinu á reinhard@boksala.is fyrir föstudag.

DAGSKRÁ:

Laugardag 2.

>> meira

23. nóvember 2006 | G.S
Æfingar sunnudaginn 26. nóvember!
Sunnudaginn 26nóvember nk. munum við færa æfingu hjá M1/FU1 yfir á fimmtudaginn 30. nóvember nk.
>> meira

21. nóvember 2006 | G.S
Æfingabúðir hjá Breiðablik með Sensei Amos
Helgina 24.-26nóvember standur Breiðablik fyrir æfingabúðum með sensei Richard Amos 6. dan. Sensei Amos lauk þjálfaranámskeiði JKA (Asai sensei hluta) og keppti auk þess nokkru sinnum á All Japan Championship með mjög góðum árangri.

Nk.

>> meira

14. nóvember 2006 | G.S
Stelpurnar okkar Íslandsmeistarar í sveitakeppni
Íslandsmótið í kumite fór fram í íþróttahúsinu við Strandgötu laugardaginn 11nóvember sl. Haukar áttu 8 keppendur að mótinu og var það næst fjölmennasta sveitin á mótinu. Liðið okkar skipuðu Eva Lind Ágústdóttir, María Björg Magnúsdóttir, Sigríður Björnsdóttir, Ari Sverrisson, Ásgeir Helgi Ásgeirsson, Guðbjartur Ísak Ásgeirsson, Kristján Ó.
>> meira

13. nóvember 2006 | G.S
Æfingabúðir 17.-19. nóvember með Kato Sensei
Æfingabúðir verða haldnar dagana 17.-19nóvember n.k. En þá munu shihan Kato 8. Dan heimsækja okkur.

Shihan Kato er fæddur 22.

>> meira

7. nóvember 2006 | G.S
ÍSLANDSMEISTARAMÓT Í KUMITE 2006
Íslandsmeistaramótið í kumite 2006 verður haldið í Íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði laugardaginn 11nóvember kl. 11:00, úrslit áætluð kl. 14:00

Keppt verður í eftirfarandi greinum:
• Kumite karla –65 kg
• Kumite karla –70 kg
• Kumite karla –75 kg
• Kumite karla –80 kg
• Kumite karla +80 kg
• Kumite karla opinn flokkur
• Kumite kvenna –57 kg
• Kumite kvenna +57 kg
• Kumite kvenna opinn flokkur
• Liðakeppni karla (3 manna lið + 1 varamaður)
• Liðakeppni kvenna (3 kvenna lið + 1 varamaður)

Ath.

>> meira

3. nóvember 2006 | G.S
Vel heppnað keilukvöld
Keilukvöld Karatedeildarinnar fór fram í gær í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og var góð þátttaka, en um 30 manns mættu til leiksEinhver ruglingur hafði átt sér stað við skráningu okkar og því gátum við ekki byrjað að spila á tilætluðum tíma, en í staðinn byrjuðum við á að fá okkur næringu í kroppinn.
Þegar því var lokið var tekinn einn leikur og þar mátti sjá snildar tilþrif. Þegar leiknum var lokið fórum við yfir skorið til að sja hverjir hlytu verðlaun fyrir hæsta skor. En alls voru 5 manns sem náðu skori yfir 100, Kristín, Sigurjón, Magnús, Sigurbjörn og Guðmundur.

Hæsta skor var sem hér segir,
1.

>> meira

31. október 2006 | G.S
Arnór Ingi unglingameistari
Unglingameistaramótið í kumite fór fram í Fylkishöllinni nú um helginaVið áttum 5 keppendur á mótinu að þessu sinni. Arnór Ingi, Freyr, Guðbjartur Ísak, Guðmundur Hjálmar og Kristján Ó.

Ekki er hægt að segja annað en að "Strákarnir okkar" hafi staðið sig með prýði :)

Arnór Ingi vann sinn annan unglingameistaratitil annað árið í röð. Ísak endaði í 2.

>> meira

30. október 2006 | S.J
Keila á fimmtudaginn
Fimmtudaginn 2nóvember mun Karatedeild Hauka fara með iðkendum 11 ára og eldri í keilu í Keiluhöllina í Öskjuhlíð.
Við fáum okkur næringu á staðnum og spilum tvær umferðir í keilu.
Tveir leikir í keilu kosta 1150 kr. og næringin kostar 850 – 1500 kr. eftir hvað fólk kýs að nærast á.
Áætlað er að hittast að Ásvöllum kl 19:00 til að sameinast í bíla, lagt verður af stað 19:15 og mæting í Öskjuhlíð kl 19:30.

Æfingar munu falla niður hjá þessum iðkendum þennan dag.

Láttu þig ekki vanta, skemmtum okkur saman.

Skráning er hafin hjá þjálfurum..

>> meira

29. október 2006 | G.S
ÍM Kumite 2006
Íslandsmeistaramótið í kumite fer fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu laugardaginn 11nóvember nk.
Nánar auglýst þegar nær dregur.

Stjórnin. . .

>> meira

28. október 2006 | G.S
Úrslit á innafélagsmótinu
Innanfélagsmót Karatedeildar var haldið sunnudaginn 22október sl. í sal deildarinnar.

Mikið var af flottum tilþrifum og ekki annað að sjá en keppendur og áhorfendur hefðu mikið gaman af.

Úrslit voru sem hér segir,

Kata krakka 12 ára og yngri
1. Óli Jarl
2.

>> meira

19. október 2006 | G.S
Unglingameistaramótið í Kumite
Unglingameistaramótið í Kumite fer fram sunnudaginn 29október nk. í Íþróttahúsi Fylkis. Keppnin hefst kl.
>> meira

18. október 2006 | G.S
Innanfélagsmót á sunndaginn
Innanfélagsmót Karatedeildar verður haldið sunnudaginn 22október nk. í sal deildarinnar. Mótið hefst kl.
>> meira

15. október 2006 | G.S
Fréttatilkynning: HM-Tampere
Ekki fór nú eins og að var stefnt á HM í karate sem lauk nú seinnipartinn í dag í Tampere í FinnlandiÞar kepptu fyrir Íslands hönd þeir Ari Sverrisson og Andri Sveinsson. Ari keppti í gær í opnum flokki en tapaði strax í fyrsta bardaga. Það sama gerðist hjá honum í dag í -75 kg.
>> meira

14. október 2006 | G.S
Ari á HM - Opni flokkurinn


ég keppti í opna flokknum í dag við gaur frá ÍranTapaði fyrir honum,
þó með of stórum mun finnst mér. Hann vann 9-0, náði tveim sanbonum,
nihoni og ipponi á mig. Bardaginn byrjaði ágætlega, ég var með mjög fina
tilfinningu.

>> meira

10. október 2006 | G.S
Ísak vinnur gull á fyrsta bikarmóti vetrarins
Fyrsta bikarmót KAI fór fram í gær í íþróttahúsi HagaskólaGuðbjartur Ísak var á meðal keppanda og átti hann mjög góðan dag. Hann var í fyrsta sæti af níu keppendum í kata. Hann átti góða rispu í -74 kg.
>> meira

10. október 2006 | G.S
Ísak og Arnór á verlaunapall á Grand Prix
Fyrsta Gran Prix mót vetrarins fór fram laugardaginn 30september sl. í Smáranum Kópavogi. Haukar áttu tvo keppendur á mótinu í þremur flokkum.
>> meira

1. október 2006 | G.S
Ari og Andri á pall í Noregi
við erum búnir að keppa hérna í Bergen, náðum 3 bronzverðlaunumAndri
vann bronz í -80 kg flokki en gat ekki keppt í opna flokknum þar sem
hann meiddist á olboga og vildi því ekki taka neina áhættu þar sem það
er stutt í HM. Ari vann bronz í bæði -75 kg og opnum flokki. Þetta var
fínt undirbúningsmót fyrir HM, fengum marga bardaga til að prófa
mismunandi tæknir og þarmeð fínpússa þær fyrir Finnland.

biðjum að heilsa frá Bergen!

Ari og Andri.

>> meira

15. september 2006 | G.S
Æfingabúðir 22.-24. sept. með Koike sensei
Æfingabúðir verða haldnar dagana 22-24september nk. En þá mun Sensei Yutaka Koike 5. Dan heimsækja okkur á Ásvelli.
>> meira

15. september 2006 | G.S
Ari á verlaunapall í Þýskalandi
GÓÐUR ÁRANGUR HJÁ ARA OG ANDRA Í ÞÝSKALANDI

Ari Sverrisson og Andri Sveinsson tóku þátt í opnu móti, Banzai í Þýskalandi 9september. Þeir kepptu báðir í -78 kg flokki og náðu 5-8 sæti.
Einnig kepptu þeir í liðakeppni með einn lánsmann frá danmörku með í liðinu og náður þeir þriðja sæti þar.

Frétt af www.kai.is. .

>> meira

29. ágúst 2006 | Á.Á
Æfingartafla haustið 2006
Æfingartaflan fyrir haustið er komin inn hér til vinstriNú er bara að hrista af sér sumarið og mæta á æfingar.

Með kveðju,
Stjórnin. . .

>> meira

17. ágúst 2006 | G.S
Asai sensei er látinn
Shihan Tetsuhiko Asai 9dan er látinn, 71 árs að aldri. Dánarmein hans var hvítblæði. Asai sensei var stofnandi og yfirþjálfari JKS (Japan Karate Shotorenmei) og IJKA (International Japan Martial Art Karate Association).
>> meira

12. ágúst 2006 | G.S
Opin kumiteæfing
Opin kumiteæfing verður haldin mánudaginn 14ágúst nk. kl. 19:30 - 21:00 á Ásvöllum.

Ari Sverrisson mun sjá um kennsluna.

Allir 14 ára og eldri eru velkomnir.

Stjórnin.

>> meira

10. ágúst 2006 | G.S
Nýr formaður Hauka og Gísli í aðalstjórn
Aðalfundur Hauka var haldinn slmiðvikudag. Eins og lög gera ráð fyrir lagði stjórnin fyrir skýrslu og reikninga til samþykktar. Eftir það var ný stjórn kosin, enn nokkrar breytingar urðu á stjórninni.
>> meira

25. júlí 2006 | G.S
Heimsmeistaramótið í Karate
Heimsmeistaramótið í karate fer fram dagana 11 – 16 október 2006 í Tampere í Finnlandi

Landsliðsmennirnir Ari Sverrisson og Andri Sveinsson munu keppa þar fyrir Íslands hönd og því ekki úr vegi að fara erlendis og hvetja þá til dáða.

Ferðaskrifstofan Óskastundir verður með pakkaferð á mótið og textinn sem fylgir hér að neðan er fenginn að láni að heimasíðu þeirra.

5. Daga ferð á heimsmeistaramótið í karate dagana 11 – 16 október 2006.

Farið verður þann 11 út til tampere með Icelandair flogið verður á Stokkhólm og svo þaðan yfir til Tampere, flugtími til Stokkhólms er 2klst 55 mínutur og svo 55 mínutur frá Stokkhólmi yfir til Tampere. Við munum svo fljúga heim frá Helsinki um miðjan dag á mánudeginum 16.oktober enn er þó ekki komið í ljós hvort farið verður með lest eða rutu frá Tampere.

Við munum bjóða uppá fríar ferðir frá hótelinu að höllinni þar sem mótið fer fram á morgnanna og verðum komin í höllina áður en mótið hefst, einnig verða ferðir til baka eftir að mótsdögum lýkur, þeir sem ekki vilja nýta sér þessar ferðir fá upplýsingar um hvernig hægt verður að koma sér á milli staða en það er ekki innifalið í verðinu.

Verðið á pakkanum inniheldur flug fram og til baka, rútu frá flugvellinum í Tampere að hótelinu og til baka við brottför, ferðir á milli hótels og hallar, gisting í 5 nætur á 4 stjörnu hótelinu Scandic Tampere City með morgunverði, boðið verður uppá kvöldverð annað hvort föstudags- eða laugardagskvöld eftir mót, drykkir verða þó ekki innifaldir, einnig er innifalinn lokakvöldverður í loka partýi mótsins á sunnudagskvöldið þann 15 okt þar sem verður lifandi tónlist og fleira skemmtilegt og er einn drykkur að eigin vali innifalinn í verðinu.

>> meira

25. júlí 2006 | G.S
Opnar kumiteæfingabúðir á vegum KAÍ
Opnar kumiteæfingabúðir á vegum KAI helgina 29til 30. júlí nk.

Æfingarnar fara fram í íþróttahúsi Hauka Ásvöllum.

>> meira

25. júlí 2006 | G.S
Æfingabúðir
Dagana 27.-30júlí nk. verður SKSI með æfingabúðir á Laugarvatni. Þjálfarar á æfingabúðunum eru sensei M.
>> meira

8. júní 2006 | G.S
Brottför, dagskrá og gátlisti
Hér er dagskráin eins og hún kemur til með að vera hjá okkur.

Dagskrá
Föstudagur 9júní
17:00... brottför frá Ásvöllum
18:30... áætlaður komutími
19:00-20:30 æfing
21:00-21:30 kvöldmatur
22:00 -23:00 kvöldvaka

Laugardagur 10.

>> meira

2. júní 2006 | G.S
Sumaræfingar
Þriðjudaginn 13júní tekur sumaræfingataflan okkar gildi. Tímar verða sem hér segir,

þriðjudagar
kl. 19:30 til 20:45 allir
kl.

>> meira

2. júní 2006 | G.S
Loka útkall á Laugarvatn
Nú fer hver að verða síðastur að komast með á Laugarvatn.

Eins og áður hefur komið fram þá mun Sensei SKato 8. Dan sjá um kennsluna að þessu sinni. Hann ætti að vera flestum kunnur, en hann hefur tvisvar áður kennt á æfingabúðum hjá okkur við mjög góðan orðstýr.

Gisting er í Íþróttamiðstöðinn.

>> meira

2. júní 2006 | G.S
Æfingar um Hvítasunnuna
Dagana 4og 5. júní verður íþróttamiðstöðin Ásvellir lokuð vegna Hvítasunnu. Af þeim skökum falla niður æfingar þá daga.

Strjórnin.

>> meira

28. maí 2006 | G.S
Gráðun
Gráðun verður haldin hjá eftir farandi hópum

þriðjudaginn 30maí
FB2 kl. 18:30-19:30

Miðvikudaginn 31. maí
FB1 kl.

>> meira

22. maí 2006 | G.S
Kumiteæfing á vegum KAÍ
Halldór Svavarsson verður með kumiteæfingu á vegum KAÍ miðvikudaginn 24maí kl. 18.00 - 19.30 í æfingasala KFR í kjallara Laugardalslaugar.

Æfingin er opin öllum 14 ára og eldri sem hug hafa á að keppa í kumite.

Allir sem tóku þátt í æfingabúðunum með Allan Busk, landsliðsþjálfara, eru hvattir til að mæta.


Frétt af www.kai.is.

>> meira

20. maí 2006 | G.S
Aðalfundur Karatedeildar
Boðað er til aðalfundar Karatedeildar Hauka mánudaginn 29maí nk. kl:18:00.
Fundurinn verður haldinn í forsalnum að Ásvöllum.

>> meira

18. maí 2006 | G.S
Þú vilt ekki missa af þessu!
Þú vilt sko alls ekki missa af þessu!!

Hinar árlegu æfingabúðir á Laugarvatni fara fram helgina 9.-11júní nk. Að þessu sinni mun Shihan S. Kato 8.

>> meira

16. maí 2006 | G.S
Ísak efnilegastur
Fjórða og síðast bikarmót KAI fór fram í íþróttahúsinu Austurbergi 6maí sl. Haukar áttu þrjá keppendur á mótinu að þessu sinni. Guðbjartur Ísak Ásgeirsson og Kristján Ó.
>> meira

11. maí 2006 | G.S
Æfingar með Sensei Jan Spatzek
Sensei Jan Spatzek 6Dan mun heimsækja okkur í næstu viku og kenna á æfingum. Til að allir fái tíma með honum gerum við breytingu á stundaskránni þessa viku.

Tímar verða sem hér segir,
mánudagur 15.

>> meira

11. maí 2006 | G.S
Kumiteæfingar með Allan Busk
Kæru félagar

Næstu helgi fara fram kumite-æfingabúðir með landsliðsþjálfara
Íslendinga, Allan BuskAllan er án efa einn færasti kumiteþjálfari
og -iðkandi í Evrópu um þessar mundir.
Æfingarnar eru opnar öllum 14 ára og eldri og eru sem hér segir:

Föstudagur 12. maí
kl. 18:00-20:00 í KFR, kjallara Laugardalslaugar

Laugardagur 13.

>> meira

10. maí 2006 | A.S
Ari á Evrópumótinu
Evrópumeistaramótið í karate fór fram í Stavanger í Noregi helgina 5.-7maí. Fyrir Íslands hönd kepptu þeir Ari Sverrisson (Haukum) og Andri Sveinsson (Fylki). Ari keppti í -75 kg flokki og mætti Tyrkja í fyrsta bardaga.
>> meira

25. apríl 2006 | G.S
Kumiteæfingar
Karatesambandið stendur fyrir kumiteæfingu með Eddu Blöndal
fimmtudaginn 4maí kl. 18.30 - 20.00 í húsnæði Karatefélags
Reykjavíkur, í kjallara Laugardalslaugar.

Æfingin er opin öllum 14. ára og eldri sem hug hafa á að keppa í kumite.

Æskilegt er að allir sem taka þátt eigi og verði með tanngóm,
keppnishanska og fóthlífar.

Þetta er fyrsta æfingin í æfingaröð sem Karatesambandið mun standa
fyrir í sumar.

Svo mun Allan Busk, landsliðsþjálfari í kumite, verða með æfingabúðir á
Íslandi dagana 12.

>> meira

24. apríl 2006 | G.S
Æfingabúðir á Laugarvatni
Hinar árlegu æfingabúðir á Laugarvatni fara fram helgina 9.-11júní nk. Að þessu sinni mun Shihan S. Kato 8.
>> meira

12. apríl 2006 | G.S
Ari Danskur meistari
Ari Sverrisson Haukamaðurinn mikli varð um síðustu helgi danskur meistari í -75 kg flokki á Danska meistaramótinu sem haldið var í KaupmannahöfnAri hefur búið í Álaborg í tvö ár, þar sem hann stundar nám og æfir karate í Sportskarate.dk, hjá Allan Busk, landsliðsþjálfara Íslendinga.

Ari sat hjá í fyrstu umferð en mætti síðan Jonas Bisgaard, sem sigraði í -75 kg flokki á Opna Jótlenska mótinu sem haldið var um miðjan mars. Ari vann bardagann öruggt 8-0.

>> meira

Hagnýtir tenglar
Karatesambandið
ÍSÍ
WKF
EKF
IJKA
JKS
Shotokan Karate Magazine
Konur í Karate
Senda SMS
Karatevörur
Google
Dagatal
september
s m þ m f f l
  1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30  
Skrýtlur og leikir
Dilbert
Snake
Space Invaders
Tic-Tac-Toe
Asteroids
Pacman


Höfundaréttur © 1990-2010 Karatedeild Hauka - Kt. 550293-2429
Íþróttamiðstöðin Ásvöllum - 221 Hafnarfjörður - karate(hjá)kdh.is - Tel: 525-8706 - Fax: 525-8712
Site Meter